Jülevenner – Klifrið
Skilmálar gjafaleiks
Þrjú efstu sætin í Jülevenner – Klifrinu hljóta verðlaun. Þú samþykkir skilmálana þegar þú velur „Skrá“ á stigaskjánum.
1.Hver stendur fyrir leiknum
Emmsjé ehf. heldur gjafaleikinn. Öllum er frjálst að spila og þátttaka í keppninni er ókeypis.
2.Tímabil
Keppnin stendur út sunnudaginn 15. nóvember 2026. Stig þurfa að vera skráð fyrir kl. 00:00 mánudaginn 16. nóvember að íslenskum tíma.
3.Þátttaka
Spilaðu umferð og sláðu inn birtingarnafn og netfang á stigaskjánum. Þú mátt nota gælunafn. Nafnið og stigin birtast á töflunni. Við geymum netfangið til að geta haft samband við þig ef þú vinnur.
Eftir fyrstu skráningu skráir leikurinn stigin sjálfkrafa þegar þú spilar í sama vafra. Þú mátt spila eins oft og þú vilt. Stigataflan sýnir aðeins stigin úr bestu umferð þinni í hverjum vafra. Á stigaskjánum geturðu valið „Nota annað netfang“ til að breyta netfangi vegna vinninga.
4.Hver vinnur
Þeir þrír þátttakendur sem hafa flest stig á stigatöflunni þegar keppninni lýkur vinna. Stig fást meðal annars fyrir hæð, safngripi, falda miða og listamenn sem þú finnur. Þú færð viðbótarstig fyrir að ná upp á tunglið og fyrir hraða ferð þangað.
Ef tveir eða fleiri eru með jafnmörg stig gengur sá fyrir sem skráði stigin fyrst. Hver einstaklingur getur unnið ein verðlaun. Emmsjé ehf. yfirfer efstu sætin og getur fellt úr gildi stig sem fást með svindli. Þá færist næsti gjaldgengi þátttakandi upp.
5.Vinningarnir
- 1. sæti fær 10 miða á Jülevenner (vinahópurinn).
- 2. sæti fær tvo miða á Jülevenner og spilið Stælar.
- 3. sæti fær spilið Stælar.
Emmsjé ehf. fer yfir úrslitin og sendir vinningshöfum tölvupóst innan 72 klst. frá lokum keppninnar. Hver vinningshafi hefur 72 klst. frá sendingu póstsins til að svara. Berist ekkert svar innan frestsins fær næsti gjaldgengi þátttakandi vinninginn. Gættu þess að gefa upp netfang sem þú notar.
6.Persónuupplýsingar og fyrirspurnir
Á síðunni um persónuvernd kemur fram hvernig við förum með netföng, stig og aðrar upplýsingar úr leiknum. Fyrirspurnir má senda á almyrkvi@almyrkvi.is.